157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:17]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir fyrirspurnina. Ég var að lesa þetta aftur yfir í gær og það sem er áhugavert við þetta er að það eru nánast engir peningar að fara næstu fimm árin í innanlandsflugvallakerfið fyrir utan Reykjavík, Akureyri og Egilsstaði, þeir flugvellir eru hluti af því kerfi en gegna líka hlutverki alþjóðaflugvalla og hafa varaflugvallargjaldið. Þetta eru alveg ótrúlegar tölur, 2026, 81 milljón. Við erum að tala um allt flugvallakerfi landsins, alla litlu vellina sem sinna mikilvægri þjónustu í innanlandsfluginu. Á þessu ári 81 milljón, á næsta ári 49, svo 51, svo 91 og á fjórða ári aðgerðaáætlunar 40 milljónir. Hugarreikningur bara þar sem ég stend: Um 300 milljónir, 60 milljónir sirkabát á ári næstu fimm árin. Við héldum að við værum að leysa þetta með varaflugvallargjaldinu með því að taka fjármagnið í (Forseti hringir.) Akureyri, Reykjavík og Egilsstaði, það myndi lyftast upp. Þess vegna er ég að tala um þessar 350–500 milljónir sem hafa verið í kerfinu í gegnum þjónustusamninginn.