157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:19]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að nefndin þurfi klárlega að fara ofan í þetta og ráðherrann og ráðuneytið að útskýra þetta betur. Mér sýnist að hér séu að fara fjármunir til uppbyggingar á flugstöðinni í Reykjavík upp á 1,2 milljarða, sem í fyrri áætlun var 1,7 nema það átti að gerast á árunum 2024, 2025 og 2026, en þetta á að fara að gerast á árunum 2031–2040. Mér sýnist að uppbygging á nýrri akbraut og flughlaði á Egilsstöðum eigi að kosta rúma 4 milljarða á þessu tímabili meðan fyrri áætlun var upp á 8. Ef við tökum alla fjármunina til alþjóðaflugvalla í grunnneti eru það tæpir 7 eða 6,7 í þessari áætlun en voru rúmir 11, það munar næstum 5 milljörðum. Ef við hækkum nú um 11%, sem er sirka hækkunin frá því í september 2023 til desember 2025, verður talan enn hærri. Mér sýnist, ef við tökum síðan alla hina flugvellina, fjárhæðin sem á að setja til þeirra á næstu árum vera lág, hún er 2 milljarðar alls, til allra flugvalla, en var í fyrri áætlun 3,5 milljarðar. (Forseti hringir.) Ef við hækkum hana um 11% ættu það að vera 3,9 milljarðar. (Forseti hringir.) Það munar næstum 2 milljörðum, sem er verið að setja minna í flugvellina hringinn í kringum landið.