samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Hugarreikningurinn áðan, fyrsta tímabilið í aðgerðaáætlun í 15 ára samgönguáætlun, næstu fimm árin, er sirka 300 milljónir. Ég er ekki með reiknivél, þetta er hugarreikningur. Svo sjáum við það, og þess vegna er ég að tala um afturhlaðna samgönguáætlun, að á öðru tímabili koma 1.041 milljón, rúmur milljarður, og á þriðja tímabili 829, sem hefur ekkert vægi í þessari umræðu. Það eru raunverulega fyrstu fimm árin sem skipta einhverju máli. Á því tímabili eru 300 milljónir settar í þetta, 300 milljónir. Eins og ég man þetta, ég hef nú skrifað töluvert af greinum um Egilsstaðaflugvöll og lúppuna á norðurendanum og öryggishlutverk hennar, þá sýnist mér þetta vera um 4 milljarðar með aðflugsljósunum í þessari áætlun og það ætti að duga fyrir þeirri framkvæmd, með lúppuna, að geta tekið fjórar, fimm, sex vélar inn á þessa lúppu við norðurenda Egilsstaðaflugvallar, aðflugsljósin eru upp á einhverjar 800 milljónir, þannig að þær tölur ættu að standast. En það er bara gefinn allt of langur tími í framkvæmdir (Forseti hringir.) eins og ég kom inn á áðan. Þetta á allt að geta klárast á þremur árum með því að fergja fyrsta árið og síðan tveggja ára framkvæmdatími.