samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir sína ræðu. Við ræðum samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun til næstu fimm ára. Ný samgönguáætlun sem hér liggur fyrir felur m.a. í sér að rofin verði kyrrstaða í jarðgangagerð á Íslandi sem er löngu tímabært og mjög mikilvægt. Mig langar að leita í reynslubanka hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar, sem hefur setið á þingi frá 2016, ef ég man rétt, og spyrja um það verklag sem hefur verið í fyrri samgönguáætlunum og við gerð fyrri samgönguáætlana í þinglegri meðferð og eftirfylgni þingsins með gildandi samgönguáætlun: Hefur verið horft til og fylgst með framþróun og rannsóknum í jarðgangagerð, eins og framþróun í tækni, aðferðum og kostnaði?