samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Sá sem hér stendur sat á síðasta kjörtímabili í umhverfis- og samgöngunefnd og tók virkan þátt í vinnu við þá samgönguáætlun sem lá fyrir. Hér er náttúrlega í grunninn búið að breyta samgönguáætlun varðandi jarðgangagerðina og forgangsröðun jarðganga eins og við þekkjum og það kom fram í máli hæstv. ráðherra málaflokksins í gær. Það eru fyrst og fremst breytingar frá áður fram kominni samgönguáætlun, sem kom inn í þingið 2023, í forgangsröðun jarðganga. Auðvitað erum við ósátt, það er ósætti víða og við sjáum það að þegar verið er að breyta svona hlutum, við höldum að áætlunin sé hugsuð til einhvers lengri tíma og að það sé einhvers konar fyrirsjáanleiki í framkvæmdunum, þá eru það náttúrlega mikil vonbrigði núna þegar gripið er inn í með þessum hætti og röðuninni gjörbreytt í jarðgangagerðinni. Fjarðarheiðargöng detta út og Fjarðagöng koma í staðinn sem 2.–3. valkostur, Súðavík í 3. og síðan Fljótagöngin, sem er auðvitað besta mál. (Forseti hringir.) Við vitum öll að það þurfa að koma göng í staðinn fyrir almenningana og til að stytta leiðina. En þetta er auðvitað það stærsta við þessa samgönguáætlun sem við erum að ræða, það er forgangsröðunin á jarðgöngum.