157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:25]
Horfa

Eydís Ásbjörnsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir svarið (Gripið fram í.) þó að spurningunni hafi ekki verið svarað. En nánast alls staðar er aðkallandi þörf á vegabótum og nýframkvæmdum og mikilvægt að samgönguáætlun komist sem allra fyrst í þinglega meðferð þannig að hv. umhverfis- og samgöngunefnd og þingmenn geti rýnt vel í málin og tekið upplýsta ákvörðun hér í þingsal. En í framhaldi af fyrra andsvari þá mun ég óska eftir því við hv. umhverfis- og samgöngunefnd að skoða vel framþróun og tækni í jarðgangagerð, meðal m.a. með heilborun jarðganga. Ég hef fylgst með og spurst fyrir og lesið nokkuð um þær aðferðir og mögulega er hægt með þeirri aðferð, þ.e. heilborun, að vinna hraðar og jafnvel og vonandi fyrir minna fjármagn. En ég er ekki sérfræðingur í rannsóknum á þessu verklagi og tel mikilvægt að þetta sé skoðað og greint vel ásamt þeim aðferðum sem þegar liggja fyrir. Ég spyr þá og bæti við mína spurningu til hv. þingmanns: Hvaða afstöðu hefur hann til heilborunar jarðganga?