157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:26]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er náttúrlega vonlaust að taka þessa umræðu á einni mínútu. Heilborun jarðganga hefur fyrst og fremst verið stunduð á Íslandi í tengslum við Kárahnjúka og Fljótsdalsvirkjun og þar voru boraðir 40 km með heilborun. En fram að þessu, í umræðunni sem hefur snúist um þetta, hefur verið litið þannig á að það sé ekki eins hagkvæmt. Það hefur verið einhver umræða. Það er bara fínt að taka þetta upp en ég er bara að tala um umræðuna almennt. Við sem sitjum á þingi lesum okkur náttúrlega til um margt. Kyndilborun hefur síðan verið að koma inn á síðustu tveim, þrem árum og verið í umræðu — það á eftir að koma í ljós, það eru efasemdir um að kyndilborun sé tilbúin, væntanlega þekkir hv. þingmaður þá hugmyndafræði líka. En það er fyrst og fremst heilborun, eins og var notuð við Fljótsdalsvirkjun, og síðan kyndilborun sem hefur komið inn á síðustu árum, það er kannski þetta tvennt sem hefur verið notað. Það sem hins vegar er gríðarlega mikilvægt er bara almennt eftirlitshlutverk þingsins, sem ég er alltaf að tala um í tengslum við fjárlög og annað, borgarlínu t.d. Þingið verður að vera með (Forseti hringir.) alvörueftirlitshlutverk í gangi gagnvart okkar þinglegu störfum þar sem ákvarðanir eru teknar um fjárreiður ríkisins (Forseti hringir.) og þess vegna tek ég undir að eftirlit nefnda og þings er mikilvægt.