157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:28]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir ljómandi ræðu. Hv. þingmaður fór ansi víða og ég var búinn að hripa niður hjá mér allt of margar spurningar. Ég geri mér grein fyrir því að ég kem þeim ekki öllum fyrir í þessu stutta andsvari. Mig langar að staldra við góðan punkt, sem hv. þingmaður hefur vakið athygli á, sem snýr að samspili fjármála- og samgönguáætlunar. Það er kannski akkúrat stóri lykilpunkturinn þegar kemur að umræðu um það sem er fullfjármagnað og þess háttar. Við þekkjum það, eftir að hafa setið hér saman hinum megin við borðið á öðru kjörtímabili, að áætlanir eru settar fram en síðan koma einhver áföll og þá þarf að fresta verkefnum. Í ljósi þess sem við sjáum að er að gerast í rekstri ríkisins og af stöðunni í efnahagsmálum, sem er miður, er þá ekki óumflýjanlegt að endurskoða þurfi framgang samgönguáætlunar?