samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ljómandi gott svar. Mig langar að vera á svipuðum slóðum og ég var hér fyrr í dag í andsvari við hv. þm. Karl Gauta Hjaltason. Það sem snýr að arðsemi framkvæmda — gerðar eru arðsemismælingar og það kemur fram í samgönguáætlun hver arðsemi hverrar framkvæmdar er. En þegar við horfum á hlutina í víðara samhengi, til hvers við erum með samgöngubætur, þá er það liður í samgöngubótum að bæta líðan fólks og auka öryggi, búsetuöryggi. Það er eitt af því sem mér hefur alltaf fundist vanta, þegar við tölum um arðsemi framkvæmda, að líðan fólks, öryggi og það að fólk geti sótt sér afþreyingu, atvinnu o.s.frv. er aldrei metið til fjár. Er hv. þingmaður á svipuðum slóðum og sá sem hér stendur hvað það varðar?