157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:32]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Forseti. Í þessari umræðu um arðsemi af samgöngumannvirkjum þarf að hafa í huga að Vaðlaheiðargöngin voru gerð vegna þess að sérstök gjöld voru tekin upp sem eiga að borga framkvæmdina. Við vitum það, það er nú málið. Þess vegna færðust þau til. Þau væru ekkert komin í dag og væru væntanlega ekki að koma næsta áratuginn ef það gjald hefði ekki komið til, þrátt fyrir mjög erfitt Víkurskarð sem er oft mikill tálmi eins og við þekkjum fyrir norðan.

Arðsemi Sundabrautar er áætluð, ef ég man rétt, eftir mismunandi forsendum, 10% upp í 12–14% eftir jákvæðustu forsendum. Almennt er talað um 10–14%, mjög hagkvæm framkvæmd. Það er alltaf verið að tala um að þetta sé hagkvæmasta framkvæmdin á landinu í samgöngumálum. Það er reyndar til hagkvæmari framkvæmd en það er ekki talað mikið um hana vegna þess að hún er svo erfitt pólitískt mál. En það er reyndar mál sem íbúar á SSNE-svæðinu hafa valið sem (Forseti hringir.) mikilvægustu framkvæmd fyrir það svæði og það er styttingin til Reykjavíkur, þar á meðal Húnavallarbrautin. En ég gæti komið síðar í það vegna þess að það er gríðarlega stórt og mikilvægt út frá samkeppnishæfni, öryggi, fækkun slysa og slíkum þáttum.