samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil fyrst óska hæstv. samgönguráðherra til hamingju með að mæla hér fyrir fyrstu samgönguáætlun sinni. Það eru nokkur atriði sem ég vil nefna í þessari fyrstu stuttu ræðu minni um samgönguáætlun eins og hún liggur fyrir til 15 ára, og um framkvæmdaáætlun til næstu fimm ára. Ég ætla að koma mjög stuttlega inn á þá miklu umræðu sem hefur verið hér um fjármögnun og með hvaða hætti orðræðan hefur verið um meinta fulla fjármögnun samgönguáætlunar eins og hún liggur fyrir. Hér er vísað til þess að það sé auðvitað ekki hægt að horfa lengra en fimm ár fram í tímann með tilliti til gildandi fjármálaáætlunar en þá verða hæstv. ráðherra og þingmenn stjórnarflokkanna auðvitað að haga orðum sínum á þann veg að einhver skilji þá nálgun annar en þeir sjálfir. Það er nauðsynlegt að halda því sem kom fram hér í gær til haga að þegar vísað er til fullrar fjármögnunar til fimm ára er verið að horfa á samtölu þess fjármagns sem ráðstafað er til þessa málaflokks í fjármálaáætlun annars vegar, en síðan er alltaf sagt: Plús innviðafélagsfjármögnun. En fjármögnun innviðafélags er auðvitað bara viðbótarfjármögnun utan fjármálaáætlunar. Þá verðum við að hafa það í huga að það kallar fram annaðhvort ný gjöld eða nýja skatta, nýjar lántökur. Allt er það í framtíðinni og óútfært þannig að það að halda því fram að þetta sé allt saman fjármagnað er misskilningur. Þessi mál eiga öll eftir að koma fram. Nú er sagt að frumvarp til laga um innviðafélag komi fram í febrúar. Þá blasir auðvitað við að þessa samgönguáætlun er ekki hægt að ræða neitt á dýptina og umsagnarfrestur ætti í öllu falli alltaf að vera lengri, ná fram yfir þann tíma þegar lagafrumvarp um svokallað innviðafélag verður lagt fram svo að við þingmenn höfum einhvern möguleika á að glöggva okkur á því hvernig heildarfjármögnun málsins liggur.
Ég ætla að láta þetta duga varðandi fjármálaáætlunina fyrir utan það að rifja upp eitt atriði sem kom fram í umræðu áðan og snýr að endurskoðun fjármálaáætlunar, sem er atriði sem er nauðsynlegt að hafa í huga. Mér þykir það undarlega orðað hér og ef þetta er orðað með sama hætti og í fyrri áætlunum þá er það áhugavert og hefur kannski ekki verið gagnrýnt nægjanlega. Hér segir á bls. 16 og hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson kom inn á þetta áðan, með leyfi forseta: „Með nýrri fjármálaáætlun ár hvert verði forgangsröðun framkvæmda endurskoðuð.“ — Forgangsröðun, það er ekki verið að tala um tímaröðun, það er verið að tala um forgangsröðun. Ég hef ekki veitt þessu athygli áður, verð ég að viðurkenna, ég verð að taka skömmina á mig fyrir það. En með forgangsröðun þá erum við á þeim stað að hæstv. samgönguráðherra segir í aðdraganda framlagningar þessa máls: Ég er ekki bundinn af neinu því sem Alþingi samþykkti á fyrri stigum. Og þá hlýtur maður að velta fyrir sér: Eigum við ekki bara að ræða fimm ára áætlunina, framkvæmdahlutann? Ef hitt eru bara einhverjir minnispunktar, svona dúsur sem á að setja upp í einhver fjærsvæði til þess að menn hætti að væla, þá er best að nálgast hlutina eins og þeir eru.
Í þessu samhengi verð ég að benda á úr mínu gamla kjördæmi, hér á bls. 25 þar sem farið er yfir vestursvæðið, að þar er Akrafjallsvegur upp í Borgarnes, sem er vegur sem mikil þörf er á að lagfæra, síðan um Borgarnes og um Holtavörðuvatn, að þar eru fjárveitingar varla upp í nös á ketti fyrr en á þriðja áætlunartímabili, 2036–2040. Þangað til verða a.m.k. fjórir samgönguráðherrar búnir að sitja í því sæti sem hæstv. ráðherra situr í núna. Það er óttalega lítil festa í þessu. Sérstakt áhugamál mitt til langs tíma, Uxahryggjavegur til að tengja saman ferðasvæði Suðurlands og Vesturlands, það er ekki króna áætluð til hans fyrr en árin 2031–2035 og síðan lúkning undir 2040. Við skulum tala um framvinduna, tímalínuna eins og hún er, en ekki skapa væntingar sem ekki er innstæða fyrir. Það er það alversta sem við gerum, sérstaklega gagnvart hinum dreifðu byggðum.
Hæstv. ráðherra kom inn á það áðan að ekki væri hægt að tala um fulla fjármögnun nema með vísun í fjármálaáætlun. Það er bara svo miklu fleira sem er nauðsynlegt að ramma inn þarna. Og af því að nú sé ég að hæstv. ráðherra er kominn hér í hurðargættina þá vil ég endurtaka það og hvetja hæstv. ráðherra til að huga að því, og hvetja nefndarformann og framsögumann málsins þegar þar að kemur til að líta það jákvæðum augum, að umsagnarfrestur um málið teygi sig fram yfir þann tíma þegar hæstv. ráðherra leggur fram þingmál um innviðafélagið, hvort sem það verður hæstv. innviðaráðherra eða hæstv. fjármálaráðherra.
En allt saman mun þetta fjármagnast með viðbótarsköttum og gjöldum og lántökum umfram það sem búið er að ramma inn í fjármálaáætlun eða er lagt til í gildandi fjárlögum. Núgildandi fjárlög eru auðvitað ekki áætlun, þau eru lög, svo því sé haldið til haga vegna umræðunnar í andsvörum hér á undan. Það eru breytingar á framsetningu sem ég vil fá að nefna sömuleiðis og er kannski ástæða til að hv. umhverfis- og samgöngunefnd skoði sérstaklega og ég vil hrósa hæstv. ráðherra, ef hann kemur í andsvar, fyrir það að vera þaulsetinn hér í gegnum þessa umræðu. Í gildandi samgönguáætlun er sérstök lína undir suðursvæði II, sem er Reykjavík og suðursvæði, það hét það þá, í dag heitir það höfuðborgarsvæði í nýrri framsetningu. Þar var sérstök lína sem rammaði inn framlag ríkis til samgöngusáttmála. Það er engin slík lína í þessari nýju áætlun en það er hér lína undir höfuðborgarsvæðinu sem heitir Bætt umferðarflæði og öryggisaðgerðir, sem er sérstakur þáttur af framkvæmdahluta samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Ef hæstv. ráðherra kemur hér í andsvar vil ég vinsamlegast biðja hann um að útskýra hvort þessi lína hafi gleymst eða hvort henni sé fyrir komið einhvers staðar annars staðar í þeirri áætlun sem hæstv. ráðherra mælir fyrir núna. (Gripið fram í.) Þetta er á bls. 24, neðst í rammanum sem þar birtist, höfuðborgarsvæðið er tilgreint þar. Það eru sérstaklega tilgreindar upphæðir í bætt umferðarflæði og öryggisaðgerðir, sem er innan samgöngusáttmálans, en á móti fer út lína sem hét áður: Framlag ríkis til samgöngusáttmála. Ég vil biðja hæstv. ráðherra að útskýra þetta fyrir okkur hinum óbreyttu.
Síðan varðandi hluti sem ég vil biðja um að hv. umhverfis- og samgöngunefnd skoði sérstaklega, en það eru verkefni sem hafa þróast með miklum furðuhætti, til að mynda framkvæmdir á Kjalarnesi. Í gildandi samgönguáætlun var áætlað að klára á Kjalarnesi 2023 en ef minnið svíkur mig ekki þá voru fjárveitingar færðar úr því verkefni með loforði um að þeim yrði skilað til baka sem síðan hefur hökt. Þegar sú áætlun var samþykkt árið 2020 voru 8 km eftir, nú eru þeir 5. Kostnaður á hvern kílómetra hefur farið upp um 154% á föstu verðlagi, þ.e. verðlagi 2020 samanborið við núna, ég á eftir að aðlaga þetta. En ég vil biðja hv. umhverfis- og samgöngunefnd að skoða sérstaklega hvernig fjárveitingum til Kjalarnesvegar hefur verið hnikað til því þetta er eiginlega alveg ótrúleg staða, að horfa á fjárveitingarnar sem eru áætlaðar núna, í heildina tæpir 6,4 milljarðar, samanborið við það sem var samþykkt hér árið 2020. Kjalarnesið hefur fengið mjög stutt strá afhent í þessu samhengi.
Ég vil sömuleiðis óska eftir því að í umhverfis- og samgöngunefnd verði framkvæmd greining á því með hvaða hætti stofnbrautaframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu hafa þróast frá því að samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins var undirritaður, 26. september 2019, þar til núna, með tilliti til þess hvernig þeim verkefnum sem þar voru sett inn var fyrir komið í gildandi samgönguáætlun á þeim tíma. Þetta skiptir máli fyrir okkur þingmenn, sérstaklega þingmenn höfuðborgarkjördæmanna, til að átta okkur á hver hafa orðið raunveruleg áhrif á stofnbrautarframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Ég vil líka óska eftir því að það verði skoðað hvaða breytingar hafa orðið á framkvæmdum og verkefnum miðað við það sem lagt var upp með. Þá er ég að vísa til þess að horfið hafi verið frá því að byggja mislæg gatnamót og farið til að mynda í ljósastýrð gatnamót eða aðrar útfærslur sem eru ekki með eins gott umferðarflæði og áður var áætlað. Þetta hjálpar okkur að ná utan um heildarmyndina gagnvart samgöngusáttmálunum.
Ég ætlaði að taka mikla rispu hér um borgarlínu en ég held að ég geymi það fyrir mína löngu fimm mínútna ræðu, númer tvö. Ég ætla bara í blálokin að nefna það sem kom fram hér áðan, að það er nauðsynlegt að taka sérstaklega til skoðunar Reykjavíkurflugvöll, fjármögnun innanlandsflugvalla og flugstöðina sem er nú áætluð með fjárveitingar á öðru og þriðja tímabili þessarar samgönguáætlunar. (Forseti hringir.) Það eru auðvitað allt önnur skilaboð heldur en hér er látið í veðri vaka að sé verið að senda frá ríkisstjórninni þar sem menn segja staffírugir að ný samgöngumiðstöð, flugstöð, á Reykjavíkurflugvelli sé í pípunum (Forseti hringir.) en svo er ekki króna í það nema þá til einhvers hönnunarundirbúnings sem auðvitað kemur verkefninu ekki af stað fyrr en á öðru tímabili þessarar áætlunar.(Forseti hringir.)
Frú forseti. Ég biðst forláts á því hversu þaulsetinn ég var hérna.