samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir töluna hér áðan. Hann spurði um það sem stendur á bls. 24 í tillögunni en þar stendur stjörnumerkt: „Framkvæmdir við Sundabraut verði fjármagnaðar með gjaldtöku. Verkefni verði vísað til innviðafélags.“ Þetta er vegna þess, eins og stendur í stjórnarsáttmálanum (Gripið fram í.) — já, það er ekki, ég hélt að það væri alveg augljóst þar. Ókei, ég get bara skoðað þetta nánar og farið í þetta í seinni ræðu. Svo að ég fjalli um flugstöðina þá tel ég mikilvægt að hún nái fram að ganga. Það er hugsað sem PPP-verkefni, þ.e. að við förum í það í samvinnu við flugfélögin eða flugrekendur. Ég tel mikilvægt að flugstöð sem er áttræð í ár, byggð 1946, (Forseti hringir.) — að við byggjum sem þjóð góða flugstöð í höfuðborginni fyrir innanlandssamgöngur, innanlandsflug. Það er gríðarlega mikilvægt og það er löngu, löngu tímabært að gera það.