157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:45]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Fyrst vil ég segja að ég fagna orðum um nýja flugstöð en það þarf að koma fram á skýrari hátt hvernig hæstv. ráðherra sér fyrir sér að þoka því máli áfram. En varðandi það sem ég spurði hæstv. ráðherra sérstaklega um þá stendur í neðstu línu í gildandi samgönguáætlun, í ramma sem tekur yfir Reykjavíkursuðursvæðið, sem sagt höfuðborgarsvæðið, að framlag ríkisins til samgöngusáttmálans hafi verið 3 milljarðar árið 2020, 2,3 milljarðar árið 2021 og síðan 2 milljarðar á ári 2022, 2023 og 2024. Í þeirri samgönguáætlun sem við ræðum núna er þessarar fjármögnunar inn á höfuðborgarsvæðið hvergi getið. Það er komin inn lína sem tekur á bættu umferðarflæði og öryggisaðgerðum en það er einungis brot upphæðarinnar. Ég ítreka því spurningu mína — þó að hér sé öllu snúið á haus hvað það varðar að ég leyfi mér að spyrja, en hæstv. ráðherra fyrirgefur mér það: Er þessari fjármögnun, framlagi samgönguáætlunar inn til samgöngusáttmálans, fyrir komið annars staðar því að þetta er auðvitað (Forseti hringir.) ekki upp í nös á ketti í því samhengi, sá liður sem hér er settur inn, sem rammar inn bætt umferðarflæði og öryggisaðgerðir?