samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Varðandi hugtakið þar sem talað er um bætt umferðarflæði og öryggisaðgerðir — á þessu ári eru 400 milljónir settar í það og ná út fyrsta tímabil á hverju ári til 2030, og síðan á öðru tímabili 2 milljarðar og á þriðja tímabili 2 milljarðar. Hér er um að ræða fjárveitingu sem ætlað er að greiða kostnað við ýmsar smærri framkvæmdir tengdar stofnvegum á höfuðborgarsvæðinu til að bæta flæði og öryggi. Fjárveitingin er einnig ætluð til uppsetningar vegriða til að aðskilja akstursstefnur og til að auka umferðaröryggi á hliðarsvæðum vega á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er fjárveiting til Vegagerðarinnar, það sem að þessu lýtur.
Aðeins varðandi flugstöðina í Reykjavík þá er það PPP-verkefni og framlag í flugstöð er leigukostnaður, það er það sem er undir. Ég ítreka það áfram að við erum með flugvöllinn í Reykjavík, það er ekki búið að finna annan flugvöll og við verðum að standa vörð um rekstraröryggi og flugöryggi vallarins. (Forseti hringir.) Þessi umræða um Reykjavíkurflugvöll er komin út í móa. Finnum fyrst annað flugstæði og förum þá að hugsa um að flytja flugvöllinn. Við gerum það ekki fyrr.