157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:49]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir seinna andsvarið og er sammála honum hvað varðar mikilvægi þess að ramma inn styrka stöðu Reykjavíkurflugvallar. Ég ræddi við aðstoðarmann hæstv. ráðherra hér í hliðarsal upp á að óska eftir því að reynt verði að leiða fram svar við spurningunni sem snýr að fjármunum sem fara úr samgönguáætlun inn í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, hvar þeim fjármunum er fyrir komið núna. Það geta ekki verið 400 milljónirnar sem hæstv. ráðherra nefndi hér áðan en ég vona bara að við náum að leiða þetta fram síðar í umræðunni þó að andsvörum milli mín og hæstv. ráðherra sé lokið. Í öllu falli verður það ekki gert seinna en í nefndinni, en ég held að það væri kostur að þetta lægi fyrir áður en þessari umræðu lýkur.