samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu. Það er kannski búið að ræða þetta svo mikið að ég fer ekki mikið í innviðafélagið núna. En svo er það það sem kemur fram á bls. 16 í samgönguáætlun varðandi endurskoðun í tengslum við fjármálaáætlun og samgönguáætlunina. Það er gríðarlega mikilvægt að allir átti sig á því um hvað málið snýst og skilji þetta orðalag. Ég ætlaði aðeins að koma inn á Reykjavíkurflugvöll í næstu ræðu, þetta er stuttur ræðutími sem við höfum hér, og mikilvægi hans. Ég hef aðeins komið inn á fjárveitingar í þessu plaggi til innanlandsflugvallakerfisins og sýnt fram á hversu daprar þær eru; 60 milljónir um það bil, samkvæmt hugarreikningi, að meðaltali á ári í aðgerðaáætlun á fyrstu fimm árunum, 300 milljónir allt tímabilið og svo er þetta afturhlaðið 800 og síðan 1.000. En varðandi Reykjavíkurflugvöll og allt sem að honum snýr, gæti hv. þingmaður aðeins skýrt afstöðu sína í því máli? Nú í aðalskipulagi er Reykjavíkurflugvöllur á sínum stað til 2032. Við erum að komast á sama stað og þegar undirskriftasöfnunin hófst 2013, þegar önnur aðalbrautin átti að fara 2016 og allur völlurinn 2024.