157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:51]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er auðvitað þyngra en tárum taki að staða Reykjavíkurflugvallar sé í raun jafn óljós og hin lögformlega staða rammar inn. Það er hreinlega ótrúlegt að honum sé eingöngu ætlaður staður í Vatnsmýrinni til ársins 2032. Miðað við þá hrakfarasögu sem rannsóknir — ég hreinlega trúi varla að enn sé verið að verja skattpeningunum í að halda þeim rannsóknum áfram. Það er óskiljanleg meðferð á skattpeningum að enn sé verið að brenna þá í rannsóknum í Hvassahrauni. Afstaða mín er sú að Reykjavíkurflugvelli sé best fyrir komið þar sem hann er. Við eigum að tryggja að við getum byggt upp í kringum hann flugtengda þjónustu. Við eigum að tryggja hann til lengri tíma. Við eigum að ganga til þess verks að byggja hér upp nýja flugstöð. Núverandi flugstöð er því miður til skammar fyrir höfuðborgina. Við eigum bara að laga þetta og koma málum þannig fyrir í Vatnsmýrinni að flugtengdir aðilar þori, vilji og geti fjárfest þar.