157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:58]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Mig langaði í síðara andsvari að spyrja mér öllu reynslumeiri mann sem stendur oft hér í pontu, hv. þingmann og fyrrum þingflokksformann Miðflokksins, og hefur margsinnis verið að brýna hæstv. ríkisstjórn til alls konar verka og reyna að hafa hlutina straumlínulagaða eins og við viljum almennt hafa þá í þinginu. Nú erum við í fyrri umræðu og það er mikið skrifað og skrafað enda erum við að ræða hér gríðarlega mikilvægt og stórt plagg. Málið fer svo til hv. umhverfis- og samgöngunefndar þar sem það verður rætt frekar; gestakomur, umsagnir og því um líkt. En alla vega til að byrja með, áður en frumvarpið um innviðafélagið er lagt fram og fyrir 1. umræðu, gestakomur og umsagnir, er komið til móts við þetta? Mig langaði bara að spyrja mér töluvert reyndari mann hvernig hann sér þetta fara í ljósi þess að ekki er lítið gert úr mikilvægi innviðafélagsins þegar kemur að tekjustofni og grundvelli og stoð og styttu þessarar samgönguáætlunar.