157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:59]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég kom inn á það í ræðu minni hér áðan að það er í raun ótækt að umsagnarfrestur samgönguáætlunar hjá umhverfis- og samgöngunefnd verði styttri en svo að það náist ekki að leggja fram málið sem á að ramma þetta innviðafélag inn áður en sá frestur rennur út. Það er bara beinlínis dónalegt að koma þeim sem veita umsagnir í þá stöðu að leggja vinnu, sem er töluverð, í að skrifa umsögn um mál sem þetta gagnvart sínu svæði, eða þeim hagsmunum sem menn tala fyrir og þeim sjónarmiðum sem aðilar vilja benda á, ef þetta risapúsl í heildarmyndinni liggur ekki fyrir. Vissulega verða lög um innviðafélagið ekki samþykkt áður en þessi tími rennur út en ég held að það væri í öllu falli dónaskapur gagnvart umsagnaraðilum að setja þeim svo knappan tímaramma að umsagnir þurfi að vera komnar til umhverfis- og samgöngunefndar áður en búið er að sýna á spilin hvað varðar sýn ríkisstjórnarinnar á regluverkið og fjármögnun.