samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni og fyrrum sessunaut fyrir fínustu yfirferð og nokkrir góðir punktar þarna sem við tökum með okkur í vinnuna í umhverfis- og samgöngunefnd. Ég hef nú svolítið gaman af því hvað það fer í taugarnar á ykkur að við skulum tala um þann raunveruleika að þessi samgönguáætlun er fullfjármögnuð, þ.e. eins langt og fjármálaáætlunin nær til, því það er staðreynd og svo er verið að vinna að þessum stórframkvæmdum í gegnum innviðafélagið. Ef menn vilja glöggva sig betur á innviðafélaginu þá hefur það mál legið í samráðsgátt síðan í byrjun desember og þar er þetta bara nokkuð vel útskýrt þannig að ég hvet fólk til þess að kíkja aðeins á það. Svo er von á því hér á næstunni.
Hv. þingmaður gagnrýndi aðeins gjaldtöku sem yrði væntanlega einn hluti af tekjustreymi innviðafélagsins. Nú veit ég ekki betur en að hv. þingmaður sé einn af flutningsmönnum máls um samgöngufélagið Þjóðbraut sem gengur einmitt út á að fara í stórtæka gjaldtöku við öll helstu samgöngumannvirki í eigu ríkisins. Hvort er hv. þingmaður með gjaldtöku í umferðinni eða á móti gjaldtöku í umferðinni?