157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:04]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Varðandi samráðsgátt þá erum við náttúrlega að fara að setja málið í samráðsgátt um leið og við ljúkum þessari góðu umræðu sem fer hér fram og nefndin á alveg eftir að fjalla um það hversu langur sá tími verður sem við gefum í það. En ef fer sem horfir þá er von á þessu máli um innviðafélagið til þingsins bara á allra næstu vikum og eins og ég segi þá hefur það legið í samráðsgátt í einn og hálfan mánuð þannig að það er vel hægt að glöggva sig á því. Ég hugsa að flestir hafi allar þær forsendur sem þeir þurfa til að meta þær framkvæmdir sem eru í þeirra nærumhverfi og gefa umsögn miðað við það. Svo skýrist þetta allt á næstu vikum hvernig við vinnum samgönguáætlun og á sama tíma málið um innviðafélagið.