samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þarna í lokin kom einmitt það fram sem mér finnst skipta svo miklu máli: Þetta skýrist allt á næstu vikum. Það er ekki í neinu samhengi hægt að líta á það að fjármögnun sé frágengin. Horfum bara á hvernig hefur gengið að koma á innviðafélagi í tíð fyrri ríkisstjórnar. Það gekk ekki vel, það voru áform uppi um það.
En varðandi spurninguna sem kom fram áðan um þá þingsályktunartillögu sem ég er meðflutningsmaður á varðandi innviðafélag þá skiptir máli að sú gjaldtaka sem á sér stað í notkunargjöldum til að mynda sé ekki bara hrein viðbót við alla aðra gjaldtöku sem þegar er til staðar. Ég hef alltaf horft til þess að ef menn ætli að setja á sérstök veggjöld, til að mynda eins og áform eru uppi um að viðhafa í tengslum við samvinnuverkefni og fleiri slíka þætti, þá sé horft til þess að ná kannski hærra hlutfalli tekna inn af þeim sem ég kalla einskiptisnotendur. Punkturinn er sá að það verði stigið til baka með ákveðna gjaldtöku á móti slíkri nýrri gjaldtöku. Nýja gjaldtakan verði ekki bara 100% viðbót á þegar mjög skattlagðan hóp ökumanna og ökutækjaeigenda.