157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:18]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Tómasi Þór Þórðarsyni fyrir ljómandi ræðu og hv. þingmaður kom víða við í sinni stuttu yfirferð sem tók einar tíu mínútur ef ég hef skilið þetta rétt. Hv. þingmaður staldraði aðeins við það sem sneri að forgangsröðun framkvæmda. Þegar við tölum um forgangsröðun framkvæmda þá vitum við, og það eru allir sammála um það, að viðhaldsþörfin er gríðarleg. Það er eitt af því sem við þurfum að horfa á í náinni framtíð og næstu ár og það verður alltaf þannig. En síðan kom hv. þingmaður inn á það sömuleiðis sem snýr að stöðu og horfum í efnahagsmálum. Það er alveg ljóst að allar samgönguáætlanir sem hafa verið samþykktar hér á árum áður hafa alltaf tekið mið af fjármálaáætlun. Nákvæmlega það sama á við um þessa samgönguáætlun. Hvað varðar mat hv. þingmanns á þeirri stöðu sem er í dag í efnahagsmálum hér á landi og þær horfur sem eru fram undan þá er ég þeirrar skoðunar að sú fjármálaáætlun sem nú er í gildi og samgönguáætlun sem við erum að fjalla um hérna — þær koma ekki til með að tala saman. Við tökum síðan nýja fjármálaáætlun til kostanna hér á vormánuðum og miðað við horfur þá held ég að það sé alveg ljóst að það þurfi að horfa til þess að annaðhvort skera niður eða að hæstv. ríkisstjórn ákveði það að hallalaus fjárlög séu ekki til skoðunar árið 2027.