samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ljómandi gott svar. Ég ætla að vera áfram á svipuðum nótum því að þetta snýr að öllu því sem við erum að fjalla um hérna, samgönguáætlun, og síðan eigum við eftir að sjá hér frumvarp sem snýr að innviðafélagi. Það er ekkert nýtt af nálinni að fjalla um innviðafélag. Við getum horft til þess sem hefur verið gert í Færeyjum og hvað var gert með Hvalfjarðargöngin og fleira en við komum alltaf að sama stað: Við notum krónuna bara einu sinni í hvert skipti og þegar krónunum fækkar þá verðum við að sníða okkur stakk eftir vexti. Það er náttúrlega það sem fyrri ríkisstjórnir voru að eiga við. Það voru ákveðin áföll sem dundu yfir og þá þurfti að bregðast við og fara annað. Er það ekki alveg ljóst að það er akkúrat sú mynd að teiknast upp, sem betur fer á minni skala núna en var hjá fyrri ríkisstjórn, að það þurfi að draga úr framkvæmdum? Þá væri nú líka gott að fara að spara stóru orðin.