157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:23]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni kærlega fyrir seinna andsvar, það er ekki annað hægt en að taka undir þetta flest. Það er alltaf mjög lítið gert úr þeim skakkaföllum og þeim áföllum sem dundu yfir þegar það hentar orðræðunni. Það er bara orðræða sem fólk verður að eiga við sjálft sig. Hv. þingmaður minntist á innviðafélag, það er kannski eitt sem ég náði ekki að koma að áðan þegar ég var að tala um þessa lánsfjármögnun og ríkisfjármálin, að stór breyta varðandi innviðafélag, sem er náttúrlega ekkert nýtt af nálinni, er aðkoma lífeyrissjóðanna, sem er kannski mesta spennan fyrir. En í umsögn frá Landssambandi lífeyrissjóða stendur að það megi aldrei líta á aðkomu lífeyrissjóða sem sjálfsagða. Það er líka önnur breyta í þessu, hvað innviðafélagið á að vera traust stoð í hugmyndinni um þessa samgönguáætlun og hvernig hún á að ganga upp. Mér finnst spurningarnar kannski aðeins of margar á þessum tímapunkti en þá er líka ljómandi gott að við erum bara í fyrri umræðu.