samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Tómasi Þór Þórðarsyni fyrir afbragðsgóða og yfirgripsmikla ræðu. Margir punktar sem þar komu fram sem ég tók niður samviskusamlega og ég er handviss um að munu sömuleiðis koma til kasta nefndarinnar að fjalla um. Ég vona auðvitað heitt og innilega að hv. þingmaður komist niður fyrir tíu í forgjöf í sumar og held innilega með honum í því mikilvæga verkefni. Við erum sammála um að það sé ágætt að vera í raunheimum, ég fagna því líka. En raunin er sú að þessi samgönguáætlun er auðvitað yfirgripsmikil og framlag til umræðu til næstu ára og áratuga og mér hefur oft þótt skorta þolgæði hjá þingheimi að ræða málin til lengri tíma og þora að setja út áætlanir sem spanna fleiri en eitt kjörtímabil. Svo geta auðvitað forsendur breyst, við vitum það alveg. Það geta komið ytri þættir sem hafa áhrif og þá tökumst við bara á við það þegar og ef að því kemur. Fjármálaáætlun kemur síðan núna í vor, önnur fjármálaáætlun þessarar ríkisstjórnar, og við munum sjá þá betur hvernig rammarnir verða þegar kemur að næstu árum. Þannig að ég deili kannski ekki þessari miklu áherslu og áhyggjum af þessum spurningum um hvernig og hvað og forminu á stöðunni. Ég bara fagna því svo innilega að þessi áætlun sé komin hingað inn þannig að við getum farið að hefja þessa vegferð sem er svo nauðsynleg fyrir samfélag okkar og ég vona að við séum öll sammála um það. Það að tryggja þessa innviðauppbyggingu er eitthvað sem við ættum þverpólitískt að vera sammála um að sé nauðsynlegt og mikilvægt að rjúfa þessa kyrrstöðu.
Mig langaði í mínu fyrra andsvari að spyrja hv. þingmann varðandi forgangsröðun framkvæmda. Það er eitt að koma hingað upp og gagnrýna forgangsröðunina. En hefur hv. þingmaður skoðanir á því hvernig ætti að forgangsraða öðruvísi og er hann þá með dæmi um það? Hverju myndi hann fresta og hvað myndi hann setja framar í forgangsröðinni ef hann hefði frítt spil?