samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hv. nýjum formanni umhverfis- og samgöngunefndar kærlega fyrir fyrra andsvar. Ég held að hún hafi mögulega misskilið mig aðeins eða kannski tekið örlítið setningar frá hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni varðandi forgangsröðun af því að ég var ekki að gagnrýna hana, þannig að því miður get ég ekki boðið upp á fyrirsagnarsvar hér. Ég sagði bara að ég skildi forgangsröðunina gríðarlega vel. Hún er náttúrlega undirstaðan í þessu og ekki ætla ég að fara að standa hér og segja að þessi brú eigi að vera á undan annarri og fara að fá einhver símtöl. Í seinni ræðu minni hér á eftir vil ég kannski tala aðeins meira um Reykjavík. Hv. þingmaður minntist á í byrjun varðandi samgönguáætlunina — ég skrifaði svo stuttan punkt að ég man ekki hver spurningin var, en ég veit hvað ég ætla að segja, að hæstv. innviðaráðherra — til lengri tíma, þarna kom það. Hv. þingmaður vildi hafa þetta til lengri tíma, til einhverra ára, þetta myndi ekki bara spanna eitt kjörtímabil og vildi að umræðan og orðræðan væri svolítið þannig í þinginu. Ég held að það geti allir verið sammála um það. Þess vegna var svolítið skrýtið, eins og hv. þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, Ólafur Adolfsson, hefur aðeins verið að benda á, að hæstv. innviðaráðherra væri að tala fjálglega um að hann væri ekki bundinn af fyrri samgönguáætlun, hann opnaði kannski smá pandórubox hvað það varðar. Það verður svolítið erfitt, ef og þegar ný ríkisstjórn tekur við eftir þrjú ár, að vera í raun og veru búinn að opna á það að nýr ráðherra geti bara gert það sem hann vill, miðað við orð innviðaráðherra. En í grunninn er ég alveg sammála því og tek undir með hv. þingmanni að í svona áætlun um vegi úti um allt land, í einhverju stærsta landi miðað við höfðatölu, þá verðum við auðvitað að geta hugsað til lengri tíma. Annað er bara ekkert hægt á okkar fallega landi.