157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:34]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur kærlega fyrir andsvarið og spurninguna. Jú, þetta er alveg rétt. Þess vegna erum við búin að vera að ræða svona mikið um þetta innviðafélag og hugmyndirnar um það og hvernig hugmyndin er, að þetta sé fullfjármagnað. Væntanlega verður, á meðan þessari fyrri umræðu líður fram, áfram karpað um það. Það er ekki langt síðan að annar meðlimur í umhverfis- og samgöngunefnd, hv. þm. Ása Berglind Hjálmarsdóttir, kom hér upp og hélt því fram fullum fetum að þetta væri fullfjármagnað. Þar ætlum við að vera ósammála, alla vega í þessari fyrri umræðu.

Að sjálfsögðu myndi þessi ágæti frumkvöðull ekki fá eina einustu krónu út á þessi loforð, það liggur í hlutarins eðli. En þrátt fyrir að maður sé mikið að tala um þetta innviðafélag er maður ekki neikvæður fyrir því, bara alls ekki. Spurningarnar eru bara svo margar enn sem komið er. Þess vegna er svo skrýtið að frumvarpið um það sé enn þá í samráðsgátt og sé ekki komið inn til þingsins og hvernig samráðstíminn og umsagnarferlið muni einhvern veginn ekki krossa þegar það kemur inn í hv. umhverfis- og samgöngunefnd til umræðu. Sérstaklega þegar maður fer í gegnum svona stærstu framkvæmdirnar, af því að við erum að tala um þetta innviðafélag og hvernig það er bara hugmynd í dag, ágætishugmynd en hugmynd engu að síður, þá er það skrýtið þegar þú lest texta á blaði um framkvæmdir við hringveg við Ölfusá, með leyfi forseta:

„Framkvæmdir við Hringveg um Ölfusá verði fjármagnaðar með gjaldtöku. Verkefni verði vísað til innviðafélags.“

„Framkvæmdir við Sundabraut verði fjármagnaðar með gjaldtöku. Verkefni verði?vísað?til innviðafélags.“

„Fjárveiting til jarðgangaáætlunar innan fjárhagsramma er til undirbúnings og rannsókna. Verkefni verði?vísað?til innviðafélags.“

Það er örlítið ódýrt að vera að skutla þessu bara til innviðafélagsins, þótt maður skilji það alveg. En mér finnst líka að hæstv. ríkisstjórn og hæstv. innviðaráðherra og ráðuneytið séu líka að bjóða upp á þessa umræðu þegar við erum að tala um þennan hrikalega mikilvæga tekjustofn samgönguáætlunar sem við vitum ekki meira um eins og staðan er akkúrat núna.