samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Mig langar að byrja á að fara aðeins yfir innviðafélagið sem á að stofna og fara yfir nokkra punkta til að benda fólki á að fullfjármögnuð samgönguáætlun stenst auðvitað enga skoðun. Byrjum á að skoða innviðafélagið. Ég les beint upp úr samgönguáætlun sem við erum að fjalla um hérna, en þar stendur að ríkisstjórnin hyggist „rjúfa kyrrstöðu í jarðgangagerð og vinna á viðhaldsskuld í vegakerfinu með því að greina hugmyndir um stofnun innviðafélags“. Greina hugmyndir um stofnun innviðafélags, við erum á þessum stað enn þá, herra forseti. Við erum að greina hugmyndir um stofnun innviðafélags en samt er þetta félag hluti af því að þessi samgönguáætlun telst fullfjármögnuð að mati stjórnarliða. Það er auðvitað með ólíkindum að halda þessu fram og ekkert annað en blekking. Svo kemur hér áfram:
„Félagið, sem sjálfstæður lögaðili, mun starfa á sjálfbærum fjárhagslegum grundvelli en jafnframt með það samfélagslega markmið að flýta fyrir þjóðhagslega mikilvægum framkvæmdum.“
Þetta er mjög mikilvægur punktur. Vissulega er tilgangurinn að flýta fyrir samfélagslega mikilvægum framkvæmdum og þess vegna held ég að þessi salur sé meira og minna sammála því að stofna þetta innviðafélag. Hins vegar er lykilpunkturinn í þessu sá að félagið mun starfa á sjálfbærum fjárhagslegum grundvelli enda er fjárveitingavaldið hér á Alþingi. Það vald er ekki í stjórn þessa félags, ekki í stjórn Landsvirkjunar, Isavia eða annars staðar. Þess vegna getur þetta félag ekki farið í óarðbær verkefni, það mun vera byggt á því að skila hagnaði. Gott og vel. Við munum setja eignir inn í þetta félag. Við vitum ekki hvaða eignir. Við munum gera ráð fyrir tekjum inn í félagið. Við vitum ekki nákvæmlega hvernig eða hvernig þær munu skiptast en samt er því haldið fram að þetta sé fullfjármögnuð samgönguáætlun.
Svo stendur hér að markmið innviðafélagsins sé að tryggja hraðari framvindu stórra samgöngumannvirkja og svo er listað upp hvernig það á að gerast. Þetta er gott markmið. En félagið hefur ekki stofnað. Þetta er enn þá bara markmið. Það voru nú bara fréttir um það held ég í gær að fjármálaráðuneytið væri að ráða einhvern mann til að vinna að þessum málum þannig að þetta er enn þá allt bara á hugmyndastigi. Við eigum eftir að samþykkja þetta mál hér á Alþingi, sem ég vona að verði gert eftir að það hefur fengið þinglega meðferð, en augljóslega er samgönguáætlun ekki fullfjármögnuð.
Svo kemur hér fram:
„Félagið fer með eignarhald þeirra mannvirkja sem það fjármagnar. Hægt verður að færa eignarhald mannvirkja til ríkisins eftir að þau hafa verið tekin í notkun á grundvelli samkomulags þar að lútandi, enda hafi það ekki neikvæð áhrif á afkomu félagsins.“
Aftur er þetta mjög mikilvægt. Það er eingöngu hægt að færa eignarhaldið til ríkisins ef það hefur ekki neikvæð áhrif á afkomu félagsins. Hvaða eignir hafa ekki neikvæð áhrif á afkomu félagsins? Það eru augljóslega bara óarðbær verkefni. Það þýðir að ef við ætlum að vera með óarðbær verkefni í þessu félagi þá þarf að samþykkja það hér á Alþingi þannig að það þarf að vinna í þessu. Hvernig á þetta félag að vera sett upp? Á það að vera sett upp með stofnfjárframlagi frá ríkinu og vera bara í arðbærum verkefnum? Eða er þetta félag sem verður með óarðbær verkefni? Þá á fjárveitingavaldið heima hér á Alþingi. Þetta eru svolítið mikilvægir punktar. Svo segir hér: „Stefnt er að því að lagt verði fram frumvarp um félagið á Alþingi á vorþingi 2026.“ Enn og aftur, stefnt er að. Málið hefur ekki verið lagt fram. Það er stefnt að því. Ég ítreka að þetta er sagt vera fullfjármagnað. Þetta er alveg með ólíkindum.
Ég skal viðurkenna að ég er orðin hundleið á því að þessi ríkisstjórn sé að halda einhverju fram sem er ekki rétt vísvitandi. Þessi hugmynd um innviðafélag er bara fín. Af hverju þarf að vera að tala um það aftur og aftur að áætlunin sé fullfjármögnuð þegar það er ekki rétt? Er ekki hægt að fara rétt með staðreyndir? Alveg eins með alla skattpíninguna sem við erum að verða fyrir núna á þessu ári, af hverju er ekki hægt að segja eins og er, að það á að hækka skatta? Við vorum að berjast við það fyrir áramót að reyna að ná fólki á sama stað í raunveruleikanum.
Þetta var það sem ég vildi segja um innviðafélagið. Mig langar aðeins að fara út í og taka dæmi um eign sem gæti runnið inn í þetta innviðafélag. Ég hélt að planið væri, ef við myndum selja eignir, að við myndum vilja draga úr ríkisskuldum. Við ætlum að bæta í samgöngur með því að draga úr ríkisútgjöldum. Það virðist ekki vera málið. Það virðist vera enginn áhugi á að draga úr ríkisútgjöldum heldur óttast ég að núna eigi að selja eignir ríkisins, eignir okkar Íslendinga, til að viðhalda útgjaldagleði ríkisstjórnarinnar. Ekki er talað um það að draga úr útgjöldum, það kemur hvergi fram, til að bæta samgöngur. Innviðafélagið á að fjármagna m.a. með sölu eigna. Og eins og ég kom aðeins inn á í samtali við hv. þm. Tómas Þór Þórðarson að þá er nánast alveg sama hvaða eign við munum selja, það mun þurfa umræðu.
Ég ætla að taka aftur dæmið um Isavia. Er til að mynda áhugi yfirhöfuð hjá þessum meiri hluta á að selja Isavia? Það væri áhugavert ef einhver þingmaður meiri hlutans kæmi hér upp og svaraði því hvaða félag hann telur að sé samstaða um að selja. Um hvaða félag er samstaða hjá þessari ríkisstjórn að selja? Ef það væri Isavia, vilja þau þá selja allt, vilja þau selja hluta, vilja þau ekki eiga mannvirkin? Þurfum við ekki taka umræðu um það hvort við viljum yfirhöfuð selja það félag? Væri kannski nær að bjóða út reksturinn á því ef það mætti jafnvel reka það enn betur? Bjóða út reksturinn, það var gert á Kýpur. Reksturinn var boðinn út með mjög skipulögðum hætti þannig að það lá alveg fyrir, ég held að það hafi verið 15 eða 20 ára samningur, hvernig flugvöllurinn átti að stækka til hagsbóta fyrir þjóðina. Það átti að byggja nýja álmu, það átti að gera ákveðna hluti og það gekk allt eftir. Þeir vildu fá fleiri ferðamenn. Það hafðist. Það var verið að endurnýja þennan samning.
Við eigum eftir að taka þessa umræðu. Hvað viljum við gera? Hvað viljum við selja? Hvað viljum við bjóða út? Hvað þurfum við að eiga? Sumir segja að við þurfum ekki að eiga neitt. Ég hélt að þessi ríkisstjórn vildi eiga flest. Mér finnst samt gott að heyra að það sé ekki málið hjá þessari ríkisstjórn, hún sé tilbúin að selja hluti, hún vilji selja Landsbankann. Hver er tilgangurinn með því að eiga Landsbankann að mati meiri hlutans? Er það einhver tilgangur eða er Landsbankinn að fara inn í þetta innviðafélag? Við vitum ekki neitt. Við vitum ekki neitt en samt er þetta kallað fullfjármagnað innviðafélag, reyndar óstofnað eins og kom fram hérna áðan, óstofnað. Enn þá er stefnt að því að leggja fram frumvarp um þetta innviðafélag.
Ég fagna því ef stjórnarliðar fara að koma í umræðuna og gefa okkur betri innsýn í þetta þannig að vinnan fram undan verði kannski aðeins auðveldari og við komumst fyrr á sama stað í þessu máli því að það er ansi langt á milli núna. Það er kannski ekkert skrýtið vegna þess að það liggur mjög lítið fyrir um hvernig eigi að fjármagna þetta öðruvísi en með einhverjum eignum, einhverjum sköttum, einhverjum gjöldum. En kannski vita þingmenn meiri hlutans ekkert frekar en við hvernig á að gera það. En þá er ágætt að það komi bara fram og við komumst á sömu blaðsíðu.