samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir ljómandi góða og kraftmikla ræðu. Það sem upp úr hv. þingmanni stóð hér í ræðustól var umræðan um innviðafélag. Helsta inntak ræðu hv. þingmanns var um hvernig innviðafélag ætti að vera uppbyggt og ég greip vel niður í það þegar hv. þingmaður kom inn á að við vitum ekki neitt hvernig þetta á að vera. Nú höfum við fyrirmynd þess efnis hvernig þetta er gert í Færeyjum. Þar eru ákveðin veggjöld í gegnum göngin og síðan er ríkisábyrgð af hendi færeyska ríkisins hvað það varðar að ábyrgjast greiðslur. Síðan fjármagna þau sig, eins og ég hef best skilið, í gegnum bandaríska fjárfestingarsjóði og banka. Það má vel vera að það sé hugmyndin sem er verið að fara í en ég get svo sem ekki lesið það út úr því sem stendur um þetta blessaða innviðafélag í samgönguáætlun. En hvert telur hv. þingmaður að þarna sé verið að fara?