samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir ljómandi svar. Ég ætla að vera á svipuðum slóðum áfram og velta fyrir mér þessu færeyska módeli, ef við getum kallað það því nafni, en að vísu kemur grunnhugmyndin fyrst og fremst frá Hvalfjarðargöngunum í gegnum Spöl. Nú vill þannig til að mörg okkar hér í þessum sal höfum farið í heimsókn til Færeyja og kynnt okkur hvernig þeir fara með þessi félög sín. Ég hef nú skilið það þannig að það sé fyrst og fremst eitt félag um hvert verkefni, sem er að vísu undir yfirsjón eins félags sem sér um öll göngin, gamla gangafélagið í Færeyjum, sem er þessi ábyrgð sem ríkið veitir síðan ef umferð fer ekki eftir því sem áætlað var í upphafi til að standa undir kostnaði af lánum og svoleiðis. Ég held að það sé að mörgu leyti áhugaverð leið til að fara. Ég er alveg sammála því sem hæstv. ríkisstjórn kemur hér fram með (Forseti hringir.) sem snýr að því að við þurfum að hugsa meira um og fara aðrar leiðir til að flýta samgönguframkvæmdum. Ég tel að ef vel heppnast með innviðafélagið sé það mjög góður kostur.