157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:53]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir góða spurningu. Í raun og veru er ég algjörlega sammála honum. Það hefur tekist vel til hjá Færeyingum en þarna liggur kannski meginmunurinn á því sem á að gera hér og því sem við höfum kannski áhyggjur af, sem er einmitt hvar fjárveitingavaldið er og fer fram. Það á að fara fram hér og þannig er það hjá Færeyingum. Ef það er ríkisábyrgð þá er það hver? Alþingi myndi veita hana sem hluta af lögum um opinber fjárlög. Já, Færeyingar gera þetta vel. Ég er ánægð með að það eigi að stofna þetta innviðafélag og ég vona að vel takist til. En ég hef áhyggjur af því þegar talað er um að þetta sé fullfjármagnað, ég skil ekki hvernig það fer heim og saman við það að fjárveitingavaldið er hjá Alþingi og við vitum ekki neitt hvernig þetta er fullfjármagnað.