157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:55]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir prýðisræðu. Við höfum mikið rætt þetta innviðafélag í þessari umræðu. Það er náttúrlega svolítið furðulegt hvert við erum komin en það segir svolítið hver staðan er. Það er farið með mjög yfirstemmdar yfirlýsingar um að samgönguáætlun sé fullfjármögnuð. Þetta er orðræða sem er búin að vera hérna í heilt ár, að þetta sé allt svo frábært. En síðan kemur bara í ljós að allar stóru framkvæmdirnar, eins og Sundabraut og annað, byggja á innviðafélaginu sem hefur ekki verið stofnað og frumvarpið er ekki komið inn í þingið. Við höfum fengið upplýsingar frá meiri hlutanum um að það hafi verið rætt um hvernig eigi að standa að þessu í ríkisstjórn. En þetta er svona lykilatriði þegar við erum að ræða um samgönguáætlunina í þinginu, hvernig þessi staða er. Ég tek því undir þetta atriði að þetta er svolítið sérstakt hjá okkur og hvernig félagið er skapað með sjálfbærum hætti.

Varðandi hugmyndir um að selja Isavia eða hluta af Isavia, nú þykist ég muna rétt að hv. þingmaður er fyrrum stjórnarmaður í Isavia og langar að spyrja hv. þingmann hvort það séu einhverjar skoðanir í Miðflokknum um það. (Forseti hringir.) Við Sjálfstæðismenn lögðum fram tillögu í tengslum við fjárlögin núna í desember um að selja að mig minnir 49% af fyrirtækinu, að íslenska ríkið væri enn þá með meiri hluta. (Forseti hringir.) Ef hv. þingmaður væri til í að koma inn á það.