157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:58]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Sá sem hér stendur veit að þetta er náttúrlega gríðarlega viðkvæm umræða. Afsakið spurninguna ef þið eruð viðkvæm en ég held að það sé fínt að koma aðeins inn á hana í umræðunni um samgönguáætlunina. Svo það sé algerlega tekið fram og alveg skýrt þá er munurinn á því þegar við Sjálfstæðismenn leggjum fram tillögu um að selja hlut í Isavia sá að við erum aldrei að tala um flugbrautirnar og infrastrúktúrinn út frá öryggismálunum. Reyndar hef ég sjálfur talað fyrir því varðandi heimildir ráðherra í 6. gr. í fjárlögum, og var með umræðu hér og tillögu í fjárlagaumræðunni núna í desember, um að færa flugbrautirnar undir Isavia, sem er heimild frá 2012 eða 2013, ef ég man rétt, sem kæmi aldrei til greina út af öryggismálum þjóðarinnar; þú gætir ekki fært það yfir í ohf. með þeim hætti. En þetta er mikilvæg umræða sem þarf að taka. Nákvæmlega eins og hv. þingmaður kemur inn á þá er 170 milljarða, minnir mig, fjárfestingaráætlun Isavia næstu tíu, tólf árin. Það eitt er ákveðið svona áhættu-„element“.