samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka seinni spurninguna. Ég held að við séum alveg sammála, mér heyrist það. Gefum okkur það að það yrði seldur hluti af Isavia. Það væri kannski eðlilegt að fara í að borga niður skuldir. Þú sagðir að þetta væri viðkvæm umræða, það er einmitt málið. Þetta er viðkvæm umræða, hvað ætlum við að gera? Fer þetta í hítina? Fer þetta í að borga niður skuldir? Fólk hefur misjafnar skoðanir á því í hvað peningarnir eiga að fara. Þess vegna er þetta ekki þannig að þetta sé ekkert mál, að það sé búið að stofna innviðafélag og að einhverjar eignir renni inn í það og að það eigi að selja einhverjar eignir. Bara af umræðunni um þetta eina félag sjáum við hvað þetta verður mikið mál. Aftur: Þetta er ekki fullfjármögnuð samgönguáætlun. Ég vil aftur ítreka að dæmið á Kýpur var þannig að bæði var byggt upp og greiddur arður þannig að það var mjög arðbær samningur. Hann er hægt að hafa þannig að ef eitthvað þarf þá er hægt að grípa inn í samninginn.