samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Ég vildi að ég gæti sagst vera sérfræðingur á þessu sviði en svo er ekki. En ef ég leyfi mér að taka þátt og fabúlera og kannski ræða þetta aðeins með hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni, þá erum við sammála því að þetta munu verða óarðbær verkefni. Þess vegna held ég að það sé mikilvægt að það stoppi ekki hjá okkur hér í þinginu að vera búin að veita t.d. fjárheimildir inn í þetta, eins og hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson sagði áðan, lán eða eignir sem búið er að samþykkja af Alþingi að nota í það. Hins vegar er líka mikilvægt að það er ekkert mál fyrir ráðherra að bregðast við og segja að hann vilji að þetta félag fari í óarðbær verkefni ef heimild er komin frá Alþingi.