samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Ég þakka spurninguna. Já, ég er ekki hrifin af samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Væri ég hrifin af honum væri kannski hugmyndafræðin ágæt. En ég held að við séum hins vegar sammála um að það er ekki sama sem er arðsamt fyrir mögulegt innviðafélag, sem á að skila bara arðsemi, og arðsemi fyrir ríkið, þ.e. vegaframkvæmd getur verið mjög arðsöm fyrir okkur sem þjóðfélag, einhverjir vegarkaflar, af því að það hefur önnur áhrif. Það getur fækkað umferðarslysum, hefur áhrif á vöruflutninga, alls konar hlutir sem geta verið ábati fyrir ríkissjóð í heild. Þess vegna þarf Alþingi að taka ákvörðun um hvað á að veita í framlög fyrir þessi óarðbæru verkefni því að þau eru kannski arðbær fyrir ríkið en ekki fyrir einstaka einkafyrirtæki.