157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:06]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir yfirferðina og heyri að hv. þingmanni er mjög umhugað um innviðafélagið, sem ég skil því það skiptir mjög miklu máli. Í mörg ár hefur verið rætt um stofnun innviðafélags en nú ári eftir að ríkisstjórnin tók við eru ráðherrarnir búnir að koma sér saman um það hvernig eigi að standa að þessu. Áformaskjal hefur legið inni á samráðsgátt í einn og hálfan mánuð þannig ég hvet hv. þingmann til að koma til að glöggva sig á því ef hana langar að viða að sér frekari upplýsingum. Ég ætla að nota tíma minn hér til að fara bara aðeins yfir hvernig þetta er uppbyggt samkvæmt upplýsingum sem hafa legið fyrir. Þetta verður sem sagt sjálfstæður lögaðili sem mun starfa á sjálfbærum fjárhagslegum grundvelli en jafnframt með það samfélagslega markmið að flýta fyrir þjóðhagslega mikilvægum framkvæmdum. Fjármögnunin kemur í gegnum eiginfjárframlag, ríkið leggur til árlegt eiginfjárframlag, lánsfjármögnun, þar sem félagið nýtir lánsfjármögnun með ríkisábyrgð, gjaldtöku, tekna er aflað með gjaldtöku af samgöngumannvirkjum í eigu félagsins, og svo aðkomu fjárfesta, en það er gert ráð fyrir möguleikum á fjárfestingu lífeyrissjóða og annarra fjárfesta. (Forseti hringir.) Ég kemst ekki lengra með þetta núna en þetta er það sem liggur fyrir.