157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:08]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Ég held að það hafi ekki verið nein ákveðin spurning í því. En þetta er nefnilega málið. Það kemur ekkert fram í áformaskjalinu. Það sem hv. þingmaður var að lesa hér upp var meira og minna það sama og ég las upp í minni ræðu til að benda á hversu óljóst þetta væri. Styð ég innviðafélag? Já. Tel ég að ríkisstjórnin sé að ná einhverjum stórkostlegum árangri með því að vera sammála síðustu ríkisstjórnum og ætli að gera þetta? Nei. Finnst mér gott að hún ætli að leggja þetta mál fram? Já. Vona ég að hún leggi það fram sem fyrst? Já. Vona ég að ég fái einhverjar nánari upplýsingar sem fyrst? Já. Og vona ég að þetta verði að veruleika? Já, en þetta er allt eitthvað sem ég vona, ég veit ekkert um þetta. Ég þakka hins vegar hv. þingmanni úr meiri hlutanum fyrir að koma í andsvör við mig því að það er ekki mikið af þingmönnum meiri hlutans hér í salnum að taka þátt í þessari umræðu. Markmiðin eru góð, við erum sammála um það, en við eigum alveg eftir að sjá hvernig þetta verður.