samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Já, ég get kannski lítið annað sagt en að mér heyrist við vera nokkuð sammála um að þetta er ekki komið fram. Það kemur fram í febrúar hvaða eignir fara inn í félagið. Við ræddum hérna áðan að það gæti orðið mikill ágreiningur um þær eignir sem fara inn í þetta. Hv. þm. Ása Berglind Hjálmarsdóttir segist vera í góðri trú um að þetta sé fjármagnað vegna þess að ríkið getur tekið lán á móti eignum. Jú, jú, ég get líka alveg verið í góðri trú með það en það breytir því ekki að þetta er ekki fjármagnað. Málið er ekki komið fram. Við vitum ekki hvaða eignir þetta verða. Við vitum ekki hvort ríkið ætli að skuldsetja sig mikið meira, vitum ekki hversu miklar tekjur eiga að koma þarna inn, að hve miklu leyti þetta verður bara skuldsetning ríkisins, hversu mikið af eignum fer þarna inn sem við notum þá ekki í að borga niður aðrar skuldir. Þessu öllu er enn þá ósvarað.