samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða spurningu og mjög þarfa spurningu: Hvernig getum við beitt okkur? Ég held að það sé hluti af þeirri umræðu sem á sér stað hér í þinginu og nú eiga allir flokkar fulltrúa í hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Ég myndi vilja sjá að hægt væri að leggja áherslu á það að þegar við erum að tala um einhverja vegkafla þar sem mikil umferð er, eins og bara t.d. á þessari leið frá Þelamörk inn að Akureyri, væri jafnvel hægt að horfa til þess hvort innviðafélagið sem við bíðum öll spennt eftir að líti dagsins ljós geti tekið á þessu. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að við erum líka búin að vera gagnrýnin á að sú samgönguáætlun sem við erum að fjalla um núna mun væntanlega ekki halda vegna þess að það gætu orðið breytingar á fjárlögum og fjármálaáætlun. Vissulega held ég að þetta sé mikilvægt en við þurfum líka að huga að því hvernig að því er staðið.