samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka fyrir svarið. Ég velti fyrir mér í þessu samhengi, hv. þingmaður, að nú hef ég lagt fram, ásamt fleirum og var fyrsti flutningsmaður, þingsályktunartillögu sem varðar framkvæmdir við þjóðveginn yfir Öxi. Þar gildir hið sama, að tímamörkin sem þeirri framkvæmd eru sett eru algerlega óásættanleg. Sú framkvæmd er tilbúin til útboðs. Öll forvinnan liggur fyrir, allur grunnurinn er til staðar og því er ekkert eftir að gera nema að setja þetta verk í útboð. Ég sé að forseti er að gefa mér aukamínútu og ég kann vel að meta það, ég nýti hana kannski bara. Ég spyr hv. þingmann hvort við getum ekki sammælst um það og náð einhvern veginn eyrum hæstv. ráðherra um að flýta málinu í gegnum umfjöllun í umhverfis- og samgöngunefnd því að ég hygg að það séu hvergi á landinu tækifæri til að fara í eins gríðarmiklar vegstyttingar eins og þarna er um að ræða fyrir eins fáa framkvæmda kílómetra.