157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:28]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir prýðisræðu og rétt að koma inn á Bárðardalsveginn og hvernig hann hefur þróast. Þetta eru einhverjir 40 km frá Goðafossi og inn að Mýri við Aldeyjarfoss. Mikil ferðamennska tengist Aldeyjarfossi og síðan er þetta leiðin inn á Sprengisand þannig að í ferðaþjónustu er þetta mjög mikilvægt og einnig fyrir íbúana.

Mig langaði svo rétt að koma inn á þessar brýr. Við þekkjum það með Jökulsá á Fjöllum, þegar það gaus og holuhraunið stækkaði 2014, að þá var verið að fara í framkvæmdina en svo gekk ekkert að koma henni aftur inn, það þurfti að hanna þetta allt upp á nýtt út af því eldgosi og við sjáum að nú er þetta komið svolítið seint. Það er enn töluverður tími þannig að væntanlega er framkvæmdinni að seinka um 15, 16 eða 17 ár. Sú brú, sem þarf að keyra yfir á 30 km hraða, er orðin mjög gömul og líka brúin yfir Ásbyrgi yfir Jökulsá á Fjöllum. Svo gleymdist að tala um Skjálfandafljótið og brýrnar gömlu, 1935 við Ófeigsstaði og síðan við Fosshól, Goðafossbrúna sem var reyndar tilbúin í útboð 2021 en varð aldrei af. Þetta eru gríðarlega miklar framkvæmdir.