samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég tel mig nú hafa fjallað um báðar brýrnar á Skjálfandafljóti í minni ræðu þannig að ég ætla ekki að endurtaka það, en það er alveg rétt sem hv. þingmaður kemur inn á sem snýr að hönnun mannvirkja yfir Jökulsá. Auðvitað breytast hlutir þegar náttúruvá er annars vegar. Á tímabili var alltaf verið að velta því fyrir sér hvort það yrði gos í Bárðarbungu og hvernig það yrði þegar það kæmi niður og ég hef grun um að það sé hluti af því að svo fór sem fór um þá framkvæmd. Aftur á móti lifum við á þannig landi að við þurfum að byggja okkar mannvirki yfir ár og þurfum alltaf að reikna með því versta þegar kemur að náttúruvá og við þekkjum það alveg með stóru árnar hér á Suðurlandi. Það er því þáttur sem hefur vissulega veruleg áhrif á uppbyggingu samgöngumannvirkja.