157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:31]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Þetta er rétt með Bárðarbungu. Þegar holuhraunið kom þarna, gosið 2014 — síðar kom fram þessi ótti með Bárðarbungu, að þá myndi koma 40–50 rúmmetra flóð niður Jökulsá á Fjöllum eða Skjálfandafljót eða hvar það kæmi niður. Líka niður Þjórsá, við þekkjum þá sögu varðandi raforkuöryggi og það samhengi hlutanna. Það er rétt með Lagarfljót við Öxi. Það er svolítið skrýtið í þessari samgönguáætlun að það er mjög takmörkuð upphæð á fyrsta tímabili. Síðan líður bara langt tímabil inn í annað tímabil. Þetta er um það bil 7–8 milljarða framkvæmd, ef ég man rétt, en þetta eru nokkur hundruð milljónir á fyrsta tímabili, þannig að samhengi hlutanna er ekki almennilega til staðar. Það er eins og það sé byrjað á einhverju verki, svo á bara að bíða í einhver ár með að klára það. Eins og með Öxi þá hefur það ekkert að segja nema verkið sé klárað í heild sinni. Það er því svolítið sérstakt og væri gott ef hv. þingmaður myndi aðeins koma inn á það í andsvari sínu.