samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ljómandi spurningu og vangaveltur. Ég ætla bara að leyfa mér að vera með vangaveltur, hv. þingmaður, í þessu andsvari því að þetta er eitt af því sem við höfum rekið augun í, að það er aðeins verið að byrja að narta í kökuna, búið að naga eitt hornið af henni og síðan er hún bara geymd yfir á annað og jafnvel þriðja tímabil. Ég velti því fyrir mér hvort markmið ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjárlög 2027 sé ekki farið að spila óþarflega stóra rullu þegar kemur að því hvernig framgangi samgöngumála hér á landi verði háttað á næstu árum. Það er svona eitt af því sem ég held, og ég tek það fram frú forseti að þetta eru vangaveltur, að sé að spila ansi stóra rullu hvað það varðar.