samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessa spurningu því að þetta er akkúrat það sem ég var að tala um í ræðu minni, það sem snýr að forgangsröðun verkefna. Öll viljum við fífil okkar fegri, það er bara þannig. Eðlilega myndum við þingmenn í Norðausturkjördæmi vilja hafa allar framkvæmdir hjá okkur. Síðan myndi hv. þm. Ása Berglind Hjálmarsdóttir sömuleiðis vilja hafa mikið af góðum framkvæmdum í kringum sig, það er bara mannlegt. Það er síðan hlutverk þingsins og eitt af hlutverkum nefndarstarfsins að fá gesti vítt og breitt af landinu, frá öllum sveitarfélögum, hagsmunasamtökum hingað og þangað, og svo er það hlutverk þingsins, okkar 63, að ná niðurstöðu. Stundum þarf meiri hlutinn að beita sér en yfirleitt hefur það verið þannig að það standa allir að samgönguáætlun að lokum. Það er nefnilega akkúrat það sem er svo gott við þessa málstofu sem Alþingi er, þ.e. að við ræðum hlutina og reynum að skoða hlutina til gagns, reynum að koma með rök fyrir því hvernig hlutirnir eigi að vera, hvað megi betur fara o.s.frv. Það er akkúrat það sem við erum að gera hérna. Þess vegna er það hábölvað, ég biðst forláts, virðulegur forseti, hve tíminn er stuttur. Ég held að það séu ekki bara við sem höfum verið að taka þátt í umræðu hér, í andsvörum og annað, sem þetta brennur á. Langflestir, alla vega þeir þingmenn sem koma af landsbyggðinni, hafa mjög mikinn áhuga á því að taka þátt í umræðum um samgönguáætlun. En svo að ég svari hv. þingmanni enn og aftur um hvernig ég myndi vilja forgangsraða þá liggur það í augum uppi að það væri náttúrlega bara heima hjá mér. Það er það eðlilegasta sem þingmenn gera, líka þeir sem búa í Norðausturkjördæmi, að hugsa inn á við.