157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:37]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það vill nú þannig til að ég keyri talsvert um landið og þrátt fyrir að ég sjái ýmislegt sem megi bæta í mínu eigin kjördæmi þá er ég mjög meðvituð um stöðuna í öðrum kjördæmum. Við þurfum því sannarlega að eiga þetta samtal í nefndinni, taka vel á móti fólki sem kemur af öllu landinu, frá landshlutasamtökum, sveitarfélögum og öllum þeim sem vilja hafa skoðun á þessu og vega og meta. Ef hv. þingmaður vill hitta okkur sérstaklega í nefndinni til að fara yfir þetta þá vil ég glöð eiga samtal um það yfir kaffibolla. Það er mjög mikilvægt að við náum góðri lendingu í þessu og það væri til mikils unnið ef við gætum öll staðið saman á bak við samgönguáætlun hér í sumar eða vor. Ég bind miklar vonir við hv. umhverfis- og samgöngunefnd vegna þess að þar hefur samstarfið verið sérstaklega gott og ég vonast til að svo verði áfram.