157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:41]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Svo ég svari nú síðustu spurningunni fyrst, með þetta blessaða hringtorg við Egilsstaði, þá tek ég bara undir með hv. þingmanni að það væri kannski skynsamlegra að ráðstafa þeim fjármunum á einhvern annan hátt heldur en að einblína á það eftir nokkur ár að búa þar til hringtorg, sérstaklega ef það er búið að fresta því að Fjarðarheiðargöng séu á dagskrá eins og liggur fyrir í áætlun. Varðandi umferðaröryggi þá tek ég undir með hv. þingmanni að Suðurfjarðavegur, sá vegarkafli, er sennilega langhættulegasti vegarkafli sem við keyrum í kjördæminu. Og talandi um verðmætasköpun þá veit hv. þingmaður betur en flestir hvaða verðmæti eru sköpuð í þessu sveitarfélagi sem Fjarðabyggð heitir.