157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:54]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Já, það eru gefnar 60 sekúndur til að svara þessum spurningum og það er bara erfitt. Bárðardalurinn — þetta er rétt, ég kom aðeins inn á það hér rétt áðan, það eru 400 milljónir, minnir mig, í áætlun, 3,5 km inn að Öxará. Vegurinn er 40 eða 50 km alla leiðina að Mýri, eða hvort það eru 37 km, ég er ekki alveg með það á hreinu en þetta eru tölurnar sem koma í kollinn. Útkinn er 10 km u.þ.b. Vegurinn í Útkinn er 3 til 4 m á breidd, hann er einbreiður. Við sem förum þar um reglulega — þetta er alveg lygilegt. En þetta er dæmi um að það eru kannski ekki allt of margir sem fara þangað og sjá aðstæðurnar. Þetta er því alveg hárrétt.

Ég vil hins vegar rétt koma inn á það að við erum kannski ekki alltaf að hugsa bara um okkar eigið umhverfi, ekki sá sem hér stendur. Varaflugvallakerfið og flugvallakerfi innanlandsflugs, Reykjavíkurflugvöllur og þessi mál snúa að landinu öllu. Ég minntist á Keflavíkurflugvöll hér áðan, það er gríðarlega mikilvægt út frá samkeppnishæfni Keflavíkurflugvallar að það séu góðir varaflugvellir; allar samgöngur til og frá landinu, bera eldsneyti og minnka það. Þetta eru allt arðsamar framkvæmdir og ekki síður, sem er stóra málið, gríðarlega mikið öryggismál. En brýrnar sem við búum við á þjóðvegi 1, t.d. við Goðafoss, Jökulsá á Fjöllum, Lagarfljót — það eru ekkert öll kjördæmi sem sætta sig við þetta eða hafa sýnt jafn mikið langlundargeð og íbúar í Norðausturkjördæmi. Kannski þekkja ekki allir þessar erfiðu aðstæður sem eru þetta langt úti því að þær eru flestar einbreiðu brýrnar á þessu svæði. En Bárðardalur og Útkinn, fyrst hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson kemur sérstaklega inn á það, hafa klárlega verið sveitir sem hafa ekki (Forseti hringir.) notið forgangs og ég held að það sé langt síðan Útkinnin (Forseti hringir.) komst nokkurs staðar á lista á nokkurri áætlun.